Freyja Rún
Velkomin á síðuna mína
Ég fæddist 25 júlí kl 9:55, 2001, í Hreiðrinu á Landspítalanum.
Ég var 13 merkur og 51 cm, með rosa mikið dökkbrúnt liðað hár og dökkblá augu.
Amma Kolla var með þegar ég fæddist og klippti naflarstrenginn minn.
Ég er 9 ára skvísa og er algjör grallari.
Ég er alltaf í góðu skapi og finnst alveg æðislega gaman í skólanum mínum.
Aðaláhugamál mín eru dýr, sund, handbolti og fiðla.
Ekki vera feimin við að skrifa í dagbókina mína, til þess er hún!
Mamma skrifar líka stundum fréttir af mér í vefdagbókina mína og gullkornin á síðuni er alveg vert að skoða :O)
Vona að ég sjái ykkur öll sem fyrst!!